Poker Face ;)
En mér langar sammt að blogga og segja ykkur fréttir :) Ég er sem sagt komin heim í sveitina eða réttara sagt skagafjörðinn sakna þess sammt ekkert smá að vera ekki fyrir sunnan að vinna fyrir þá sem ekki vita var ég að vinna hjá mesta sjarmatrölli EVER Jóhanni Felixsyni eða betur þekktur sem Jói Fel :D haha svo sakna ég líkaeru og jóa og arnars og guðnýjar og allra í vinnuni, en sem betur fer eru guðný og arnar að koma bara núna á næstu dögum og ætla að vera hjá mér hérna f norðan um hátíðarnar :) En við erum að tala um það að í janúar held ég á austurlandið með guðný og við ætlum að fara í húsmæðraskólann á hallormsstað, ójá það verður bara gaman :) hlakka mj0g til að prófa eitthvað nýtt :) En ég ætla að hafa þetta gott núna og ég lofa að vera geggjað dugleg að blogga og koma með sjóðheitt slúður af austurlandinu :P Elska ykkur :****
Pípol ..!!
Vá hvað fólk getur verið spes ! það getur líka verið svo tvöfalt og blöffað mann. Fær allt uppúr manni og segist skilja en svo þegar á hólminn er komið að þá skítur það mann í hjartað. Hvað fær fólk út úr því að búa til sögur og blaðra um líf annað fólks og þú þekkir einu sinni ekki manneskjuna og hefur aldrei hitt hana en samt þykist hún vita allt og jafnvel meira um þig en þú sjálf/ur gerir !!!!!!
Já langaði bara aðeins að koma þessu á framfæri J Enn ég fór á Norðurlandið á fimmtudaginn og auðvita tók mamma á móti manni með læri í ofninum mmmm gerist ekki betra :D En í gær þá var sko bakað og bakað hérna á freyjugötunni Erla perla kom og bakaði með mömmu ekkert smá girnó hjá þeim :P Hahah en ég plataði hana systur mína út með mér í gær og það var öööömulegt hahaha enginn eiginlega á barnum þannig að við fórum bara heim fyrir kl 2 og spjölluðum við mömmu langt fram á nótt :) En svo í köld er sjarmatröllið Jogvan á barnum þannig að ég vona að það verði nú fleiri í kvöld ég ætla allavegana að skella mér bara ;) Svo er Kolla að halda uppá 30 afmælið sitt í borginni í kvöld og ég skal alveg viðurkenna það að ég hefði nú alveg viljað vera þar hehe en þau skemmta sér bara fyrir mig :D En jám ég ætla að fara að gera eitthvað ;) bæjó ;)
Sardínur
Hæ Hó.. Enn og aftur skal ég ekki geta sofnað sammt er ég þreytt og búin á því eftir helgina því það var sko brjál í vinnuni:O En síðasta vika var bara róleg og góð, bara vinna sofa borða :) Fék sammt smá tilbreytingu í vinnuni ég fór 3 sinnum í kringluna að leysa af þar í einhverja tíma það var bara mjög gaman, mér leið sammt þarna stundum eins og ég væri bara lærlingur því að það er svo ,argt öðruvísi þarna en í smáralind. En nóg með vinnuna:) En hún Erla Rún Björnsdóttir var 19 ára á Föstudaginn, sem sagt 7 Nóvember Víjjjjjjj Til hamingju elskan mína aftur :D hehe en við fórum sem sagt nokkur út að borða Ég,Guðný, Erla,Kolla,Urður Andrea, Sigurlaug, Arnar, Jói, Bjarni og Aron Hólm:) Já vorum bara góður hópur. En að því loknu var haldið heim til Guðnýjar og var þar smá teiti mjög gaman :) En svo þurfti ég bara að mæta í vinnu á laugard. Brjálað að gera eins og vanalega og brjálað frekt fólk, hata svoleiðis !!!! En svo eftir vinnu fór ég nú bara heim og horfði á tvið og fór svo að sofa því að ég þurfti að mæta í vinnu aftur á sunnudagsmorguninn. Planið næstu helgi er að fara í 30afmæli hjá Kollu beip en svo er líka annað sko mamma var að bjóða mér að koma á k´rokin og mér langar svooooo að fara þannig að ég verð aðeins að hugsa þetta :) En ég hef svo sem ekkert meira að segja núna en ég bloggaði þó ;)
Bæjó ;*
TearDrop
Vá hvað þessi heimur er að leggjast eitthvað lágt, maður veit ekkert hvert maður á að snúa sér eða hvort maður eigi að hlægja eða gráta
Þetta er ótrúlegt hvað allt breyttist svona hratt og allt varð öðruvísi, fólk hagar sér öðruvísi, aktar öðruvísi, hugsar öðruvísi, það er bara allt breytt. Fólk er í því að fresta hlutum sem að það var búið að plana bara útaf þessum hækkunum og krónunni þetta er bara ógeðsegt og aumingja fólkið sem er að missa vinnuna sína, þetta er bara ólýsanlega hræðilegt....but ég skal hætta að tala um þetta !!!
Eins og er þá er ég stödd í mömmukoti, kom á fimmtudagskvöldið og fer aftur á morgunn annaðkvöld. Þette er bara búin að vera mjög góð letihelgi voðalga gott að koma svona heim og láta mömmu stjana við sig
Fékk ekkert smá góðan skötusel í matinn mmmmm ekkki hægt að lýsa því einu sinni. En á mánudaginn tekur við vinnurútínan eins og það hefur verið undafarið, ég var sammt að fatta að það eiga frekar margir afmæli í þessum mánuði, Erla, Kolla, Addý, Arnar og Mamma
Þannig að maður verður í afmæli hverja helgi í þessum mánuði hehe
En jæja ég er að hugsa um að fara bara að kúra undir sæng :)
TjáTjá =)
Blogg :)
Heheh já ég veit að ég er stór klikkuð að vera komin með enn eina síðuna en, ástæðan er sú að ég fékk bara ógeð af blogcentralinu og hana nú !!! En ég ætla að vera ótrúlega dugleg að koma með fréttir og bulla einhverju í ykkur en bara með einu skilyrði að þið kommentið :D Jæja fyrtsa blogg svona létt og laggott :D 